HEIMASÍÐAN MÍN
09.02.2008 00:34:51 / elvuskott

Vonskuveður

halló ..

Hvað gerir maður í svona óveðri sem æðir nú um allt ... nú ég er bara heima hjá mömmu og pabba með Mjalla minn.
ma og pa eru á Tenerife.. í 20 stiga hita !

var bara að horfa á sjónvarpið og spjallaði við Thelmu Rúnstykkið yfir Indiana Jones wannabe mynd með Noah While .. það var hörku stuð..

er alltaf svo smeyk í vondu veðri þannig að ég stal bara 2 bjórum og opnaði opna skrúftappa hvítvínsflösku og drakk í mig kjark.. maður er nú alveg vonlaus..

og það er kannski ástæðan fyrir því að maður rataði hingað inn.. þetta er svoldið eins og að enda á Fógetanum eða Fjörukránni .. ef maður væri á actual djammi hehe..

ég meina .. blogg er það ekki bara eitthvað ofan á brauð ?

er ekki einu sinni að blogga um Britney spears.. hvenær fer hún nú að hrökkva upp af kvikyndið ???

híhí

Gott að vera svona hjá mömmu ..

já var óvart fyndin á msn við Thelmu .. sá fyrir mér að Siggi Stormur væri uppi á Hallgrímskirkju í vonda veðrinu að gala seið til að óveðrið væri nú sem mest Sauruman style  ... all for the ratings.. hehe

jæja hætt ..

verið þið blessuð ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 13:14:50 / elvuskott

Aaaaaa

Aaaaaaaargggg 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 16:02:26 / elvuskott

Tilkynningaskylda

Hellú..

bara asnalegt að hafa alltaf þessa fyrirsögn sem var þarna síðast..

ég er löngu komin heim frá köben og farin að snúa mér að öðrum hlutum.

Er t.d komin inn í hið stórskemmtilega Facebook samfélag :

endilega kíkið á það you twatz ...http://www.facebook.com/profile.php?id=509400082

 

Gústi búin að vera í sumarfríi..

við foreldrarnir búnir að vera að skiptast á að vera með honum.. Yndislegt barn sem við eigum.

Anna er ástfangin og ánægð .. og það þýðir að ég er ánægð :)

Siggi búin að giftast henni Yöru sinni og við Atli eigum 2 ára brúðkaupsafmæli þann 13.ágúst n.k .. þannig að það má með sanni segja að "love is in the air"..

Siggi varð líka fertugur þann 04. ágúst.. merkisdagur ..

það er örugglega margt merkilegt sem ég er að gleyma að segja frá .. en nú líður að lokum..

bið að heilsa !

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 12:51:42 / elvuskott

Köben here I come.. sooon

Vííí gaman að segja frá því að ég er að fara til kaupmannahafnar þann 01.06 n.k.. !

Þeir sem vilja skilja eftir kransa og matabakka fyrir Atla og Gústa geri það .. en persónulega finnst mér það óþarfi sko :o

Jæja maður náði þeim merka áfanga að halda afmælisveislu fyrir einka soninn á laugardaginn. 

Fengum að halda þetta hjá mömmu og pabba í Erluásnum og það var þvílíkur munur.

Allir lögðust á eitt við undirbúninginn og þetta heppnaðist bara alveg ótrúlega vel.

Svo voru nottlega kosningar og Eurovision um kvöldið þannig að þetta var stór dagur.

Ég náði nú ekki einsu sinni að kjósa.. frekar léleg..

Ætla bara að ímynda mér að atkvæðið mitt hafi verið ógilt eða eitthvað ..

Alveg finnst mér fáránlegt ef fólk heldur að Sjálfstæðisflokkurinn eigi eftir að gera nokkuð annað en að halda sitjandi ríkisstjórn með Framsóknartöpurunum .. ef þið haldið að sjálfstæðisflokkurinn geri nokkurn tíma eitthvað annað en að hugsa um eigin rass þá megið þið fara að passa ykkur..

En vonum að ég hafi rangt fyrir mér.

Frí á morgun ! 9 dagar eftir í vinnunni..

Harry Potter kemur út í Júlí..

ALLT AÐ GERAST !!! híhí

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2007 10:46:26 / elvuskott

Kæra Elva

Sæl Elva..

Þetta var dagurinn sem þú gast ekki beðið eftir kvöldinu því að þú áttir von engu öðru en SUSHI !!! og Tomas þínum Lundin í þokkabót .. Held að það hafi meira að segja skapast hefð fyrir því að setja mynd af yndinu á þessa síðu þína.. held að við gerum það líka núna :o)

Er þetta nokkuð Vélstýran að vestan með krúttinu ?Þær eru allavega nógu Emilíulegar fyrir þinn smekk ;o)

Oh já þú varst alveg að farast úr spenningi yfir að prufa nýja og gómssæta sushi rétti.. langar náttúrulega alltaf að smakka Spider sushiið sem þú þorðir ekki að prufa í london.. hélst að þetta væri alvöru kónguló .. hahahaha.. silly billy..

En Anna var nú með þér í vitleysunni.. enda þið tvær löngum verið taldar svolitlir vitleysingar hehe.

Ert glöð með það að Pernelli gellan komi aftur með Eika, Tomas og þeim félögum.. varst ekki alveg að gúddera litlu ljótu lirfuna sem var í norrænu júróvísjón þáttunum í fyrra .. svoldið skorpinn á sál og líkama blessunin.

Gústi þinn komst loks til Mæju í dag eftir viku veikindi.. vonum að honum líði vel litla krúttinu.

Nú eru hvað .. fjórir eða fimm dagar þangað til þið "Freyja" litla farið og látið athuga ykkur hjá ljósunni henni Steinunni.. enda þið komnar/in aðeins lengra en þessa hefðbundnu 3 mánuði ..

Gaman gaman..

Svo var það bara Höfuðbeina og spjaldhryggsmeðferð kl: 15: 00 þú taldir þig nú heppna að fá bara tíma daginn eftir að þú pantaðir.. VOOOONUUUM að þetta geri sitt gagn gegn mígreninu..

.... Blessuð skottið mitt.. hafðu það gott í vinnunni..

p.s þetta hljómar svoldið eins og minningagrein.. híhí..

 

 

 

 Nokkrar myndir úr afmælinu góða. Bryna og Frikki káboj.. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 14:27:24 / elvuskott

Best að blogga

Góðan daginn .

Gústi heima hjá pabba sínum, fóru í snjókallagerð og til afa síns og fékk ís.  Lagði sig, ætlar með pabba sínum að heimsækja Óla.. 

ég er aftur á móti í vinnunni í dimmunni..

Föstudagur á morgun, fer að koma helgi .. gaman

Ætlum kannski í bústaðinn en veit nú ekkert hvort við sofum þar samt

jebbs.. þannig er það nú bara  

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 14:12:31 / elvuskott

Þegar sólin er helsti óvinurinn

Jæja jæja jæja.

Það er nú merkilegt með þessa blessuðu sól okkar hérna á þessu skeri sem við búum á.

Maður bölvar þegar hún lætur ekki sjá sig, og svo er bölvað þegar hún loksins lætur sjá sig.

Allavega er það leiður ávani samstarfsfólks míns sem hefur það svo gott að sitja við glugga að það vill helst ekkert frekar en að hafa sól svo að það geti nú alveg örugglega dregið fyrir hana.

Þetta hefur það í för með sér að litla ég er sólarljósslaus og þunglynd. (eða jafn þunglynd eins og sjálflærð Pollýönnu attitjútzmanneskja eins og ég getur orðið).

Og það merkilega við þetta er að ekki bað ég um sól !

vill miklu frekar hafa bjart en smá skýjað þannig að fólk neyðist ekki til að draga fyrir allt sem gleði getur veitt.

 

kv. ein innilokuð.. þó ekki í ánauð.. þannig að ég get verið sátt..

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 12:02:45 / elvuskott

Lélegt stef

Mikið rosalega finnst mér þetta nýja fréttastef á Rás 1 og 2 glatað..

Mér finnst alltaf eins og stefið standi fyrir "best að ljúga e-ju að þessum vitleysingum"..

sem sagt í allastaði MJÖG ótraustvekjandi ..

já þannig er það nú bara..

 

En ég klára þetta með lítilli gátu..

Og reynið þið nú :o)

 

KONUR KUNNA ÞAÐ

GÆLUDÝR GERA ÞAÐ

MAÐUR BER ÞAÐ Á BAKINU.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 11:57:19 / elvuskott

Má mí mó

Jæja best að blogga aðeins..

Hvað ætlaði ég aftur að tala um ?

hmmmm það var eitthvað voða skemmtilegt.. en man það bara ekki.

ó maður þá bara að sleppa þessu ?

hehe..

nei læt þetta flakka, það er þá ekki hægt að segja að ég skrifi aldrei neitt..

 

já og þessar "merkisfréttir" voru nú ekkert svona merkilegar..

En nýjustu fréttirnar eru sko miklu merkilegri !

Hvern langar að pota í Önnu Mjöll með prjóni ! Haldiði ekki að kvikyndið hafi séð JUDE LAW sjálfan ! 

ég hef alltaf sagt það .. lífið er ósanngjarnt ;)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 10:30:48 / elvuskott

Merkisfréttir !!!

En það les þetta hvort sem er aldrei neinn þannig að þið fáið ekkert að vita :evil:

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 08:04:16 / elvuskott

Jæja maður lætur ekki deigan síga..

Hvaðan koma eiginlega öll þessi skrýtnu orðasambönd ?
Hvað er Deigur ?
Veit það e-r ?

Jæja þetta var ansi mikið bissý helgi.
Fór að hjálpa Telmu mágkonu að skreyta salinn sem 30 afmælið hennar átti að vera í kvöldið eftir.
Það var bara voða gaman og mikið skreytt.
Á laugardaginn fór ég í klippingu og var svo að undirbúa kvöldið.
Það var geggjað stuð í afmælinu..
(verðið að koma aftur og kíkja þegar ég verð búin að setja inn myndir.)
Nanna og Freyr ætla að fara að gifta sig í sumar !
Gaman gaman .. okkur verður s.s boðið í sveita brúðkaup.
Víííí
Við komum heim um 3-4 um nóttina og Gústi litli var vitanlega vaknaður fyrir hálf sjö.
Maður var ansi myglaður með honum um morguninn..
Anna panna svaf á sínu græna í sófanum .. var ekkert smá abbó.
Það var almenn þynnka og höfuðverkur fram eftir degi en um 3 leytið fórum við pjakkur út á róló að veltast í sandinum. Og svo labbaði ég með kerruna til mömmu og pabba.
Um kvöldið fórum við Ma og Pa, Anna og Thelma á "Ráðskona Bakkabræðra" leikrit sem Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi í gamla Lækjarskóla.
Það var rosalega gaman.
Já og þetta var helgin.
Ætla að setja inn myndir þegar ég kem heim úr grímuballinu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 08:05:27 / elvuskott

Má bjóða þér Mysu með Mannakjétinu væni ?


Hæ hó og hí ha.

Atli komin heim frá Magdeburg og var svona líka ánægður með þetta allt saman.. (eða eins ánægður og lítill svartsýniskall frá Íslandi getur verið hehe.) Atli ég elska þig ;)

Nú er maður bara að gíra sig upp fyrir Laugardagskvöldið..
Grímuball og 30 afmæli hjá Telmu Atlasys.


Telma Ágústsdóttir: mynd í boðskorti fyrir 30 ára afmælið hennar 27/28.jan n.k

Þetta verður sko fjör.
Í svörtum fötum spila fyrir dansi og allir eiga að mæta eins og Prestar og hórur.....
(neibíddu... voru það kannski Sóldögg sem spila og allir eiga að mæta í grímubúningum almennt ?) ..
Bahh eitthvað svoleiðislegt thíhtí
Mikil spenna í gangi fyrir þessu partýi ársins..
Ég og Atli ætlum að fara í víkingabrúðarfötunum.. (það er fyrr hefr nefnt verið í málum þessum).
Þetta verður stuuuð án snuuuuðs.

Sáuð þið fréttina um gaurinn sem lenti í hákarls kjafti en var svo vondur á bragðið að honum var skyrpt út ?
Hugsið ykkur að vera svona kæstur á bragðið..
Fólk með lítið sjálfsálit hefði nú getað orðið svoldið sárt... en hver nennir nú að spá í því liði ?? 8)
En já kannski hefur Háksi ekki viljað hann án þess að fá svolitla mysu með í glasi..
Það er nú einu sinni Þorri ! ;)



Og talandi um fréttir..
Var að hlusta á frásögn af því þegar hringt var í lögguna og hún beðin um að koma í heimahús vegna óútskýrðs skarkala inni á baðherbergi.
Löggan kemur og fer galvösk inn á bað hjá viðkomandi.
Það var þó ekki innbrjótsþjófur með floga kast þarna inni.. ó nei ...
Það hafði bara gleymst að slökkva á rafmagnsrakvél inni í skáp ....
Hahahahahahahahahahahahahahahaha.. snilld.. :lol::lol::lol::lol::haha::haha::haha::haha:
Sá hefur skammast sín maður.

Þetta minnir mig nú bara á þegar pabbi hennar Thelmu Rúnar kallaði á lögguna út af ofvaxinni býflugu sem var að spóka sig í stofunni hjá þeim..
Það var verst að löggan átti í svo miklum vandræðum með að ná kvikyndininu að stofan var í hálfgerðri rúst á eftir..
Hefði kannski bara verið betra að leyfa dýrinu að roam free.

Go people and feel free to dance like children of the night !
S.s farið að breika.. !



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 10:13:59 / elvuskott

Smér ?


Hæ hæ Elva mín (ég virðist nú vera sú eina sem les þetta bull mitt.. enda kýs ég að kalla þetta dagbók fyrir sjálfa mig í framtíðinni) :lol:

Þetta var helgin þegar við Gústi vorum "ein" heima, nema Anna Mjalla bjó hjá okkur.
Á föstudaginn var bara gaman hjá okkur mæðginunum, við hlustuðum á barnatónlist og sungum og dönsuðum með. horfðum á Shrekkinn okkar og fengum okkur ís. (frystan appelsínusafa).
Dýrið fór í rúmið um hálf átta og klukkan hálf níu kom Anna Mjöll með pizzu handa okkur.
Við horfðum á Beauty and the Geek og svona voða gaman.



Á Laugardaginn vöknuðum við Gústi snemma og dúlluðum okkur bara heima.
Fórum í Ikea eftir lúrinn og fengum okkur að borða og Gústi skemmti sér vel við að leika við önnur börn á leiksvæðinu.
Þessi Ikea hugmynd er svo mikil snilld.
Fórum svo til mömmu og pabba því ég var að mála mömmu fyrir árshátíð.
Thelma Rún vinkona kom þangað því að Valdís var ekki heima.
Hún nennti ekki að horfa á Júróvísjón sjófið með okkur Önnu þannig að henni var skutlað heim.
Anna kom svo eftir vinnu og við fengum okkur salat og vesturbæjar ís.
Horfðum á þessi frekar lélegu lög og svo á annan Beauty and the geek.
Nóttin var erfið með litla kút.
Hann var sannfærður með að það væri komin dagur klukkan fjögur um nóttina og eyddi ég því 2 tímum í að koma honum aftur í svefn.
Ekki gaman.
Það voru því heldur þreytt og úttauguð mæðgin sem vöknuðum aftur kl: hálf níu á sunnudagsmorgninum.
Fórum í Hvalfjörðin með mömmu og pabba um hálf þrjú leytið.
Rosalega fallegt og gaman að koma þarna þegar allt er í vetrarbúningi.
Ég náði í víkingabrúðarfötin hans Atla sem voru geymd í bústaðnum okkar.
Ætlum að fara í þeim í 30 afmælið hennar Telmu á laugardaginn kemur.
Komum heim um hálf sex og við Gutti lékum okkur og svona.
Svo fór hann að "sofa" kl hálf átta (en sofnaði ekki fyrr en um níu).
Ég var bara að laga ísfólksborðann á ísfólkssíðunni "minni".



Gaman að photoshoppast og búa til "hreyfi" myndir.
Anna kom svo eftir vinnu að venju og við horfðum á "a night at the museum".
Rosalega skemmtileg mynd sko.
Allir sváfu eins og þeir áttu að gera í nótt og ég er komin í vinnuna.
Hlakka roooosalega til að fá Atlann minn heim.
Heyrði í honum fullt um helgina og það er bara gaman hjá honum.
Enda bjórinn í þýskalandi ódýr og nóg til af honum .. ætli þeir séu samt ekki langt komnir með að klára birgðirnar hjá bjórframleiðöndunum .. eins og gerðist víst alltaf í Hollandi þegar afi hans var þar :$ ;)8| haha..

Jæja sé þig síðar Elva mín :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 08:02:23 / elvuskott

Eitthvað oná brauð...


Jæja nú er maður mættur på job í góðu skapi með gamlann ísmolaleginn appelsínusafa síðan í gær við höndina.
Drengur (oftast kenndur við Gússsta) vaknaði eldsnemma í morgunsárið, eða nánar tiltekið kl: 06:00.
Þetta varð til þess þess að foreldrarnir skunduðu á fætur hálftíma fyrr en vanalega.
Við fjölskyldan áttum því góða stund saman við morgunverðarborðið.
Ekkert stress, éttu kex, klukkan sex.
Váááááá hvað þetta var mikill golden oldie hehe.


Magdeburg in daa laaaast century... (lesist með Arnold Svagganagga hreim)

Atlusinn fer svo galvaskur til Magdenburgar á morgun til að horfa á Íslenska landsliðið í handbolta fara á kostum ... vonandi ;)
Það verður nú gaman fyrir hann.
Ég er búin að panta Önnu Mjöll um helgina. Skipa henni að gista hjá mér og halda í hendina á mér... á það til að verða svoldið myrkfælin svona á vetrarmánuðum.
Við ætlum að hafa það huggulegt bara, horfa á forkeppnina í Júróvísjón og svona á laugardaginn..
Hlustaði reyndar á þessi fyrstu 8 lög sem verða í keppninni og við fyrstu hlustun voru þau hvert öðru glataðara...
Veit hreinlega ekki hvort maður nái eitthvað að venjast þeim .. en það kemur í ljós.

Ég er að lesa Eragorn,


sem er ekki frásögufærandi en bókin er svo illa þýdd að maaah maaah maaah maaahnnii bara blöskrar stundum.
Það finnast þarna rangar beygingar og mjög svo furðuleg orðasambönd sem ég hef sjálf aldrei á ævi minni heyrt.
Ég er ansi hrædd um að ef Freyja Gunnu systir læsi þetta að þá væri hún búin að hárreyta sig á fyrstu tveimur síðunum.
(Hún er nefninlega svo mikilll pjúrítani í íslenskri stafsetningu)..
Ég verð að finna dæmi á eftir þegar ég kem heim...
Þessi bók er samt þýdd af engum öðrum en Guðna Kolbeinssyni.


Hilmir mit daddy...

Pabbi hans Hilmis Snæs, þú veist..
Sést t.d þarna .. kannski átti Hilmir að heita Hjálmar en kallinn bara kunni ekki að beygja það rétt !!
Nei maður má kannski ekki segja svona.. ég meina maðurinn er örugglega mun betur menntaður í íslensku heldur en ég.. og hver veit .. kannski er það bara ég sem kann ekki gott að meta .. (en ég kann gott að éta þannig að ég held að allir séu bara ánægðir :D)

Jæja best go back to work..
Ég skora svo á ykkur sem þetta lesið og eruð með ykkar eigin blogg að fara að tjá ykkur aðeins meira..
Maður kemur svo alltof oft að tómum kofanum þegar mann þyrstir í nýjar uppfærslur og skemmtilegheit.
Þið eruð frábærir ! Frábærir ! FRÁBÆRIIIIR !!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 20:14:20 / elvuskott

What's up ?

Halló halló. Jæja hvað hefur maður svo eiginlega verið að gera af sér undanfarið ?
Jah ég bara spyr..

Fór til Ýru í \"Skuggann\" á miðvikudagskvöldið.
Fengum okkur sveitta Tommaborgara og horfðum svo á hina klassísku \"She\'s the man\".
Höfðum það bara huggó og nice.
Fékk svo að heyra af plönum um að fara í leikhús.
Og það varð svo úr að við Bryna og Thelma fórum á Footloose kvöldið eftir.
Það var bara rosalega gaman að sjá þetta \"stykki\".
Hefði vel getað hugsað mér að fara á tjúttið á eftir.. en maður er nú svo siðprúður að ekkert varð af því hehe.
Gústinn litli var svo veikur á föstudaginn þannig að við mæðginin vorum heima við. það fór nú bara allur dagurinn í að horfa á Shrek og Cars og svo aftur á Shrek.
það er svoldið erfitt að reyna að vera "ideal" móðir þegar manni finnst Shrek jafnskemmtilegur og barninu. Hehe.
Um kvöldið höfðum við hjónakornin það bara huggulegt.
Horfðum á Office og My name is Earl, nema í þessum þætti voru fleiri þættir inni í þættinum. Sem hétu : My name is Randy.
My name is Joy,
My name is Crabman og
My name is Dotty.
Frekar fyndið.
Við byrjuðum svo á mynd sem heitir Idiocricy en þegar hún var nýbyrjuð þá hringdi Anna Panna í mig og var stúlkan ekki bara bensínlaus á miðri leið til Palla.
Ég hentist af stað að redda bensíni og olíu og mætti til atlögu eins og hver annar riddari á bláum Nissan hehe.
Þetta varð svo til þess að ég fór með Önnu í heimsókn til Palla og það var auðvitað rosalega gaman.
Alltaf svo gaman að hitta Palla skralla.
Skoðuðum gamlar myndir sem var mjög fyndið. rosalega hefur maður elst..
Anna hitti svo Ellu systur og þær fóru saman í bæinn en ég fór bara heim. maður er bara svo hrikalega myglaður í þessum málum.
Í dag (laugardag) lék ég við Guttann minn og við höfðum það bara rosalega skemmtilegt saman.
Vorum að dansa og syngja við gömul barnalög.
Við fórum svo til ömmu hans Atla. en við Anna fórum í kringluna.
Ég skellti mér bara á stígvél..
Er bara rosalega stolt af mér að hafa loksins láta verða af því að kaupa mér slíka munaðarvöru.
Þetta eru rosalega þægileg stígvél frá Ecco. (nei ekki Ecco úr Lost ! döh.. )
En núna er Anna komin og ég ætla að fara að skutla Dla til Ólans síns.
Við heyrumst bara folk "

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Leitarbox